26.Október.2005. lítil bein

Hvað getur maður sagt eftir svona viðburðar lítinn dag. Að vísu þá var skólinn í dag áhugaverður því við erum búin að fara yfir alla fullorðins beinagrindina og erum núna komin út í þroskunarfræði og barna beinagrindurnar. Á hverjum degi eftir fyrirlestur förum við á rannsóknarstofuna og förum yfir þau bein sem voru í fyrirlestrinum og í dag í verklega tímanum vorum við að handfjatla barna og unglinga beinagrindur. Ég meina það yngsta sem ég hef séð og handfjatlað með berum augum var 13-14 ára strákur í Bosníu. En í dag vorum við að leggja út beinagrindur sem voru ca 13 ára, 10 ára , 2-4 ára og nýfædd börn. Ég verð að segja að það er alveg ótrúlegt að skoða bein úr nýfæddu smábarni, ég meina beinin eru SVVVVOOOOO lítil en sum þeirra eru samt meira og minna fullmynduð. Ég meina herðar blaðið sem ég var að skoða var meira og minna fullmyndað en það var á stærð við stóru tánna á mér, og þið vitið bara með að snerta ykkar eigið herðar blað hversu stór þau eru í fullorðinni manneskju. Ég meina ég vissi þetta alveg, enda segir það sig bara sjálft að beinin séu oggu pínu pons lítil, en það er alveg ótrúlegt að halda á þessu í hendinni. Æ, ég meina það mætti lýsa þeirri tilfinningu sem ég fann í dag við að skoða þessi bein að ef þú vinnur á kaffihúsi og það eina sem þú handfjatlar eru venjulega stórir kaffibollar, en svo einn daginn færðu kaffibolla sem er á stærð við tánna á þér. Ég meina það er spes, skrítið og áhugavert. Fattið þið hvað ég er að reyna að segja??
Alla veganna eftir tímann í dag fór ég heim og tékkaði á sjónvarpsdagskránni og komst að því að uppáhalds þátturinn minn var sýndur frá 21-01, sem sagt margir þættir í röð af: dadara MOST HAUNTED. Ég veit ekki hvort einhver af ykkur hefur séð þessa þætti, en þeir voru nýbyrjaðir að sýna þá í TV heima á íslandi stuttu áður en ég fór til Englands. Ég meina þessir þættir eru bara brilliant og ég dýrka þá.
Þannig að já það var verið að sýna most haunted frá 21-01 í kvöld og ég ætlaði ekki að missa af því 
Þess vegna fór ég inn í herbergið mitt og byrjaði að læra og læra þannig að ég væri búin með allt efnið sem ég þurfti að lesa fyrir kl 21. Að vísu var ég búin fyrr og við ákváðum að fara að versla meir. Því á föstudaginn þegar að við fórum að versla þá fórum við í eina ódýra búð og keyptum fullt af mat en ekki nóg. Æ, ég meina við keyptum gommsu af pasta og brauði og mjólk og svoleiðis en það sem við keyptum af ávöxtum, grænmeti og áleggi var ekki nóg. Við kláruðum sem sagt allt eftir 4 daga og sátum uppi með pasta, kartöflur, brauð og mjólk en ekkert með því. Þannig að ég, Helene og Julien fórum að versla aftur og keyptum alveg hrúgu af allskonar góðum mat sem mun vonandi duga fram yfir helgi. Sem þýðir að verslunar dögunum hefur verið breytt, ekki nema við förum aftur að versla á föstudaginn sem ég efa virkilega. Alla veganna ég missti mig næstum því í búðinni því fyrir algjöra tilviljun rakst ég á núðlurnar mínar. Æ, þið vitið þessar skyndi kjúklinga núðlur með chilli-inu sem allir borða heima. Jamm ég hef ekki séð þær nein staðar hingað til og þær núðlur sem við höfum keypt eru bara pura viðbjóður. Þannig að ég hef ekki borðað núðlur frá því að ég kom hingað og var virkilega farin að sakna góðu núðlanna. Ég meni segja var búin að biðja pabba um að kaupa nokkra pakka á íslandi og koma með þá núna um helgina. En ég LOKSINS fann búð sem selur þessar núðlur, og eru þær meni segja í spes austurlenskri hillu í búðinni langt, langt frá öllum hinum núðlunum og pastanu, og alveg helmingi dýrari. En ég meina who gives a shit. Ég fann þær og ég var svo hamingjusöm að ég týndi einn pakkann á eftir öðrum í fangið á mér hrópandi upp yfir mig í hvert skipti sem nýr pakki lenti í fanginu á mér.
Fyndið hvað maður getur saknað einföldustu hluta þegar maður hefur þá ekki við höndina
Já varðandi skoðunarkönnunina mína þá mætti eiginlega segja að ég hafi sett Anjelicu Huston eða Houston eins og hún er líka nefnd, því að það er hún sem að lék Mortisiu Adams í 1993 Adams family myndinni sem allir bera mig saman við. En ég skal samt setja hana sem valmöguleika þar sem hún lítur vanalega ekki eins út og hún gerði í Adams family.
Any who er farin að sofa
Lesumst

Leave a comment