2.Nóvember.2005. Ertu tilbúin til að eignast barn?

Ef þú veist ekki hvort þú ert tilbúin til að eignast barn eða ekki taktu þá þetta raunveruleika próf. 

Fituprófið
Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu
nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.

Leikfangaprófið
Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að
dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér.
Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til
baka.
Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur
vakið barnið um nætur.

Stórmarkaðsprófið
Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í
næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og
borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.

Fataprófið
Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér
stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet
og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.

Matarprófið
Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og
hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá
eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni.
Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.

Næturprófið
Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5
kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf
með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu
þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna,
ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um
ævina.
Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan
þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og
taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega
út!

Sköpunargáfuprófið
Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt
jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu
fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka.
Búðu til alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum.

Bílprófið
Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi
löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!)
Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann
vera þar. Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu
þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er
bíllinn tilbúinn!

Þolpróf kvenna
Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér.
Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10
af innihaldi pokans – 9/10 verða eftir.

Þolpróf karla
Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og
segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta
stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin
þínverði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta
sinn!

Lokaprófið
Komdu þér í samband við par sem á barn. Útskýrðu fyrir þeim hvernig
þau geta bætt sig í agamálum, þolgæðum, þolinmæði, klósettþjálfun og borðsiðum barnsins. Leggðu áherslu á að þau megi aldrei láta barnið sitt hlaupa um eftirlitslaust. Njóttu kvöldsins, því þú munt aldrei aftur hafa rétt svör við öllu. 

Já ég get sagt ykkur það að bara eftir að hafa lesið þetta þá er ég mjög ánægð með að eiga bara 2 kisur. Og verandi hérna sakna ég þeirra endalaust mikið. 

Annars er ekkert að frétta, bara búin að eyða öllum deginum í dag á að reyna að klára skilaverkefnið mitt og satt best að segja er ég að apeshitta yfir því. 

En verð að halda áfram með það

Leave a comment