9.Febrúar.2006. HIHIHI Eisi minn að koma

Hæ hæ allir 

Takk fyrir öll kommentin, virkilega gaman að fá svona næs og skemmtileg komment, og Rósa mín ég er sko engan veginn að reyna að eyðileggja CSI fyrir þér
, ég er sjálf algjörlega háð þessum þáttum elska þá (þó þeir séu algert bull). 

En já eins og Helga sagði þá er hann Eisi minn á leiðinni til mín. Hann á að vera að lenda í London hvað og hvenær og svo flýgur hann þaðan til Blackpool, og ég ætla að taka lest kl 20 til Blackpool að ná í hann. Enda bara tæplega 30 mín í lest héðan til Blackpool. 

Ohhhh ég hlakka svo til að fá hann, ég veit ekki hvort ég mun skrifa mikið um helgina. Vil frekar eyða tímanum mínum með Eisa en ekki að hanga fyrir framan tölvuna. Þið skiljið  

Alla veganna, ég er farin að taka mig til að fara að labba á lestarstöðina 

Heyrumst

Leave a comment